* You are viewing the archive for February, 2004



Á fjögurra ára fresti

Ég bara varð að skrifa eitthvað í dag … fyrst að 29. febrúar er bara á fjögurra ára fresti. Bubbi er um það bil að tapa sér á Sýn … box í gangi. Magnað. Vaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaá. Þetta er óóóóóóóóóóótrúlegt !!!!!!!!

Ég held hann geti ekki sagt orð nema láta góðann slatta af upphrópunarmerkjum fylgja hverri setningu ;) Nei, nei. Bubbi er fínn kall. Góður að syngja og svona.

Gulla verður á morgun í Fífunni í Kópavogi að selja Tupperware. Þau eru með bás og hún ætlar að vera á milli 11 og 2. Gaman að sjá hvort eitthvað kemur út úr því. Mamma var í mat hjá okkur áðan … við gáfum henni Taco fisk a-la Örn og Björg. Upp skriftin er eitthvað … Lesa alla færsluna

Hvað er málið með Gerard Houllier?

Er maðurinn ekki að fatta að hann hefur ekkert á Anfield að gera? Að tapa fyrir Portsmouth í Ensku bikarkeppninni er bara fyrir neðan allar hellur. Og alltaf skal hann svo koma með endalausar afsakanir, en aldrei bendir hann á sjálfann sig. Nú var það veðrið, óheppni að klára ekki vítið og ég veit ekki hvað og hvað.

Owen og fleiri hafa átt í meiðslum, en í leiknum gegn Portsmouth voru aðeins 2 á meiðslalista. Þeirra listi taldi hvorki fleiri né færri en 8 leikmenn! Þetta er bara ekki að ganga upp hjá kallinum. Ég taldi að hann væri svaka góður, og þegar Liverpool vann þrennuna árið 2001, var maður í skýjunum og taldi að nú væri þetta að koma.

Liverpool varðist … Lesa alla færsluna

What a difference a month makes

Mánuður síðan síðast. Magnað. Og strákurinn er eiginlega búinn að vera veikur síðan þá. Það hefur hver veikin rekið aðra hjá aumingja stráknum. Eyrnabólgur, kvef, hálsbólga, barkabólga og RS vírusinn eru bara það helsta. Maður getur orðið svolítið þreyttur á þessu. Við erum búin að fara óteljandi sinnum til læknis með hann, hann hefur fengið ómælt magn verkjastíla, astmapústa og pensílínkúra. Maður er hálf fúll yfir að borga fyrir barnið leikskólapláss hann er svo lítið á staðnum. Fyrir utan þetta allt saman þá höfum við bæði verið að berjast við kvefpestir og veikindi sem er ekki á ástandið bætandi.

Svo er alveg klikk að gera í vinnunni. Við auglýstum eftir manni á sunnudaginn, vonandi að það komi eitthvað út úr því … Lesa alla færsluna