Magnað ferðalag og veikindi
Það á ekki alveg af honum föður mínum að ganga. Hann fór í morgun til Kanaríeyja til að vera hjá systur sinni sem á við veikindi að stríða og liggur þar á sjúkrahúsi. Tryggingafélagið þeirra borgar fyrir hann farið og fann fyrir hann far frá Íslandi til Frankfurt og þaðan til Kanarí.
Hann lagði af stað í morgun, og skutlaði ég honum út á völl kl. 5. Svo varð náttúrulega 30 mínútna seinkun hjá Icelandair (kemur á óvart) og svo 20 mínútna töf fyrir ofan Frankfurt. Það þýddi að hann komst ekki beint til Kanarí frá Frankfurt. Hann þurfti því að taka aðra vél frá Frankfurt, millilenda í Madrid og þaðan til Kanarí.
Þegar hann fór svo af stað, kom upp bilun … Lesa alla færsluna