Gleðilega hátíð
Já, í enn eitt skiptið koma jólin þó maður eigi eftir að gera helling áður en þau mega koma … :o Ég sit hér aðfararnótt aðfagadags að bíða eftir humarsúpunni. Ég er að gera soð fyrir súpuna sem við ætlum að hafa í forrétt í kvöld (annað kvöld?). Þarf að vaka til rúmlega 2 og ganga svo frá því.
Við keyptum í matinn í gær (Þorláksmessu) og lentum heldur betur í vandræðum. Við fórum í Kaskó og keyptum það sem var til þar, snöruðumst svo yfir í Nótatún til að fá það sem upp á vantaði. Svínabógur átti að vera í matinn, en hann var uppseldur þar, svo og í öðrum Nóatúnsbúðum. Það var hringt fyrir okkur upp í Árbæ, og … Lesa alla færsluna