Manni getur nú orðið nóg um
350 milljónir á kjaft! Það er gróðinn sem forstjóri og stjórnarformaður Kaupþings-Búnaðarbanka skammta sér. Þeir gerðu svo góða samninga við sjálfa sig að þeim leyfist að kaupa hlutabréf í bankanum á genginu 156. Í dag er gengið 216 sem gerir um 350 milljóna króna gróða fyrir hvort ef þeir selja í dag. Þeir geta reyndar ekki selt þessi bréf fyrr en að fimm árum liðnum og að því tilskyldu að þeir starfi enn hjá bankanum … en kommon 350 MILLJÓNIR!!!
Þessir menn hljóta að vera verulega veruleikafirrtir ef þeir taka þetta ekki til baka. Ég hefði allavega ekki samvisku í að taka við þessum peningum, myndi heldur láta starfsmenn og viðskiptavini félagsins njóta gróðans. Það meikar miklu meiri bissness sense fyrir … Lesa alla færsluna