* You are viewing the archive for October, 2003



Fyrirsögn ??? Eða hvað ?? Kannski ?

Þær eru svona fyrirsagnirnar þegar maður veit ekkert hvað maður á að skrifa um, en veit að það eru allt of margir dagar síðan síðast. Valur fallinn, Liverpool að gera í brækurnar, Inter að reka þjálfarann, Barcelona ekki í Meistaradeildinni, Bayern ekki á toppnum í Þýskalandi.

Ég veit ekki alveg hvað er að gerast í þessum íþróttamálum hjá mér. Eini ljósi punkturinn er Ferrari sem sigruðu Formúla á glæsilegann hátt. En eitt er víst, það verður ekkert skipt um lið … maður er fylgismaður sinna liða í gegnum súrt og sætt. Þetta hlýtur að fara að koma.

Guttinn er búinn að vera rosalega pirraður undanfarið. Við erum búin að fara 2 ferðir til læknis og ekkert hefur fundist að honum ennþá. Hann … Lesa alla færsluna

Á Spáni er gott að djamma og djúsa

… diskótekunum á. HEI! Nema við förum ekki á diskótek, djömmum lítið sem ekki neitt og djúsum ekkert. Ekki einu sinni vín með matnum :o Annars er búið að vera alveg geðveikt hérna. Við erum á svaka fínu hóteli og með fínann bíl.

Þegar við komum á fimmtudaginn tók alveg óratíma að fá bílaleigubílinn. Ekkert svakalega gaman að hanga inni í sjóðheitri flugstöðinni og bíða í röð. Fengum hann loks og lögðum af stað á hótelið. Ég gleymdi að taka með mér kortið sem sýndi hvar hótelið er staðsett, þannig að við vissum ekki alveg 100% hvert við áttum að fara, ég vissi það þó nokkurn veginn. Af einskærri tilviljun rak Gulla augun í skildi sem á stóð Alicante Golf, sem … Lesa alla færsluna