* You are viewing the archive for September, 2003



Alveg að fara :)

Eftir tvo daga stingum við af til Spánar í heila viku! Jey … get varla beðið eftir að taka smá frí, slappa af og hafa það gott bara ég og konan. Guttinn er ekki alveg að heilla foreldra sína á kvöldin þessa dagana. Hann fer að sofa, alveg dauðþreyttur svona hálf átta, átta. Sefur eins og steinn í klukkutíma eða svo, en vill svo bara vakna. Við erum ekki alveg að skilja þessa hegðun hjá honum.

Við höfum prófað allt sem okkur dettur í hug: Sett deyfandi gel á góminn ef þetta skyldi vera tönnin að pirra hann, gefið honum verkjastillandi stíl ef þetta skyldi vera tönninn, látið hann sofa minna yfir daginn og margt fleira, en ekkert dugar. Hann byrjar … Lesa alla færsluna

Ber er hver að baki …

… nema sér bróður eigi, nema þetta sé mislingabróðir. Veikin sem Hlynur Snær nældi sér í var víst mislingabróðir, sem settist svona í hálsinn á honum. Þegar hitinn fór að lækka og honum að líða betur, fóru að koma útbrot um allann líkama og minn varð ekkert smá pirraður. Gulla skutlaðist með hann upp á heilsugæslustöð í gær og þar var þetta skoðað. Mislingabróðir var það … Góðu fréttirnar eru þær að útbrotin ættu að fara á 2-3 dögum. Við erum bara rosalega ánægð að hann skyldi taka þetta út áður en við förum til Spánar.

Við getum rekið smitberann, það var hún Gunna frænka sem kom í heimsókn til okkar sem kom með þennann gleðigjafa inn í líf okkar :( … Lesa alla færsluna

Loksins, loksins, loksins

Á laugardaginn gerðist það … Ég fór með fjölskyldunni í Sporthúsið og við settum guttann í barnapössunina og fórum á æfingu bæði tvö. Þegar ég steig á viktina eftir sturtuna, var minn bara kominn undir 90 kílóin! Þegar ég byrjaði á þessu sprikli í júní var ég rúmlega 94 kíló. Þetta gekk hægt fyrstu vikurnar, og ég fór alveg upp í 95 kíló. En svo fór þetta að mjakast niður á við og það var mjög gaman að sjá viktina fara niður yfir 90 …

Snáðinn var reyndar ekkert mjög kátur í pössuninni. Það var ein unglingsstelpa sem sá um barnapössunina. Þegar ég kom af hlaupabrettinu hélt hún á Hlyni Snæ og hann var ekkert sérstaklega kátur, grét bara. Ég tók … Lesa alla færsluna