Leikskóli fyrir snáðann
Já, þá er það ákveðið. Mánudaginn 13. október ætlar Hlynur Snær að fara á leikskóla! Okkur var bent á einkarekinn leikskóla sem heitir Vinaminni og er í Asparfelli. Við fjölskyldan fórum í dag og skoðuðum aðstæður og leist svona líka vel á. Til að byrja með verður hann hálfann daginn frá kl. 8-12. Gulla ætlar að halda áfram að vinna á kvöldin til að byrja með og svo sjáum við til hvað verður.
Það verður rosalega gott fyrir hann að komast aðeins burt af heimilinu og umgangast önnur börn, þó hann verði bara hálfann daginn. Þetta er svo sannarlega ekki ókeypis. Við þurfum að borga 21.100 krónur fyrir 4 stundir. Ef við vildum vera með hann allann daginn, kostar það rúmlega … Lesa alla færsluna