Tönn, tönn, tönn
Já. Það byrjaði að koma tönn hjá Hlyni Snæ í dag … loksins, orðinn næstum eins árs. Það er smá komið upp á 1 tönn í neðri góm. Jey!
* You are viewing the archive for July, 2003
Já. Það byrjaði að koma tönn hjá Hlyni Snæ í dag … loksins, orðinn næstum eins árs. Það er smá komið upp á 1 tönn í neðri góm. Jey!
Ræktin gengur ágætlega … Hlynur Snær stækkar og stækkar … Gulla er komin í ræktina líka … Við erum ekki í átaki, heldur erum við að breyta um “lífsstíl” … Tengdó er í Svíþjóð … Pabbi var í Vestmannaeyjum um helgina og fer aftur um Verslunarmannahelgina … Mamma er í fríi … vorum með henni í bústað um daginn … alveg hrikalega gott veður … Hef lítið komist i golf … sem er ekki gott … Svo hefur enginn skrifað í gestabókina það sem af er júlí … why ??
Ójá, nú er maður stífur. Ég lét Arnar plata mig í BodyPump tíma í gærkvöldi kl. hálf átta. Þetta eru æfingar með lóð og maður á víst að styrkjast á þessu … en mikið rosalega vaknaði ég stífur í morgun. En þyngdin er á niðurleið … það hefur ekki gerst í langann tíma :)
Alltaf nóg að gera í vinnunni. Nú kemur pabbi heim á morgun og þá missum við bílinn hans sem við höfum haft til afnota í 2 vikur. Það er búinn að vera þvílíkur lúxus að hafa bílinn … er ekki alveg viss um að pabbi fái bílinn sinn nokkuð til baka.