Allir að óska mér til hamingju !!
Það eiga allir að skrifa í gestabókina og óska mér til hamingju! Kl. 6:44 (já, kl. 6:44) í morgun lagði ég af stað að heiman og áfangastaðurinn var Sporthúsið í Kópavogi. Þar spriklaði ég í næstum klukkustund. Það var smá átak að koma sér framúr, en þegar ég var kominn af stað, þá var þetta í góðu lagi.
Ég byrjaði á því að skella mér á hjól og hjólaði stíft í 25 mínútur. Ef eitthvað er að marka mælingarnar eyddi ég rúmlega 220 kaloríum á því. Tók mér svo smá pásu, teygði aðeins á löppunum og skellti mér svo á hlaupabrettið. Var þar í 10 mínútur. Fór svo og teygði vel á öllum vöðvum, gerði smá magaæfingar og fór svo í … Lesa alla færsluna