* You are viewing the archive for May, 2003



Heimsókn til Svíþjóðar: Dagur 1

Flugfél Flugleiða átti að fara í loftið kl. 7:40 að morgni 31. maí. Því þurftum við að vakna snemma. Við stilltum allar vekjaraklukkur í húsinu, frá hálf fjögur til 4. Náðum að komast framúr rétt fyrir 4. Gulla skellti sér í sturtu, en ég kláraði að pakka niður restinni af dótinu okkar. Það er ansi mikið sem fylgir manni þegar maður er að fara með níu mánaða gamlann strák til annars lands. Sem betur fer eru Svavar og Katarina með þvottavél, svo að við þurftum nú ekki að pakka öllu sem hann á.

Við höfðum mælt okkur mót við Gunnar frænda á planinu við húsið hans pabba kl. 5. Við vorum alveg á áætlun og vorum komin rétt um fimmleytið, rétt … Lesa alla færsluna

Nýjar myndir

Jæja … Eftir langa, langa, langa, langa, langa, langa, langa bið eru komnar myndir af guttanum í myndaalbúmið. Það var komin mikil pressa á mig frá hinum ýmsu hornum landsins að setja inn nýjar myndir og loksins hafði ég það af. Fyrir utan myndirnar, þá er okkur farið að hlakka til að komast út til Svíþjóðar. Við förum á laugardaginn, og aldrei að vita nema ég skrifi eitthvað hingað á síðuna á meðan við erum úti.

Nýtt kortatímabil :)

Ekki það að kortatímibilið skipti mig einhverju máli … fannst þetta bara fín fyrirsögn.

Valur byrjaði vel í boltanum í dag … við bárum sigurorð af Grindavík í Grindavík með tveimur mörkum gegn einu. Jóhann Hreiðarsson skoraði bæði mörkin í dag. Grindavík komst yfir með marki úr mjög svo vafasamri vítaspyrnu, en Jói fiskaði vítaspyru sem hann skoraði sjálfur úr 8 mínútum fyrir hálfleik.

Hann skoraði svo sigurmarkið með hjálp bróður síns og tryggði okkur sætann sigur og hefnd gegn Grindavík sem sendi okkur niður í fyrstu deild í fyrsta sinn árið 1999. Glæsilegt hjá strákunum!

Á föstudaginn bættist ég í hóp þeirra sem eiga fartölvu. Mér áskotnaðist fín Mitac ferðatölva. Fint að vera svalur eins og hinir …

Jæja … farinn að horfa … Lesa alla færsluna

Setuverkfall ?

Ekki kannski verkfall, en allavega mikil seta … Já, Hlynur Snær tók upp á því á sunnudaginn að sitja alveg óstuddur í lengri tíma. Það var bara eins og hann hefði aldrei gert neitt annað. Við höfum verið að reyna að láta hann sitja, en hann alltaf oltið um koll eftir smá stund.

Á sunnudagskvöldið vorum við að horfa á Viltu svíkja út milljón á Stöð 2 (var óruglað alveg heillengi). Guttinn fann greinilega nýja sýn á sjónvarpið þegar hann sat, vegna þess að hann sat og sat og sat og sat og horfði á sjónvarpið.

Á laugardaginn hittist vinahópurinn heima og grillaði saman, horfði á kosningasjónvarpið og vorum bara ligeglad allt kvöldið. Það er alveg ljóst að við erum mikið matarfólk, … Lesa alla færsluna

Raunir bíleiganda í Breiðholtinu

Það kostar að eiga bíl … þó hann sé nýlegur :( Aðfararnótt þriðjudagsins 6. maí árið 2003 tók sig einhver heiðursmaðurinn til og skar 3 dekk á bílnum okkar.

Þegar ég kom út rúmlega 8 um morguninn var alveg flatt á einu dekkinu. Í sakleysi mínu hélt ég að lekið hefði úr dekkinu, setti varadekkið undir og brunaði niður í Barða. Þar var mér sagt að dekkið væri ónýtt og þurfti að kupa nýtt. 9.000 kall fyrir dekk og skiptingu.

Gaukurinn sem skipti um dekk sagði mér einnig að lítið loft væri í framdekkjunum 2 og samþykkti ég það bara án þess að hugsa meira um það. Fer í vinnuna, mæti klukkutíma of seint út af þessu veseni. Svo þegar ég fer … Lesa alla færsluna