* You are viewing the archive for April, 2003



Og þá erum við orðin þrjú í kotinu

Já, það er rétt, Bjarni Jakob er fluttur að heiman. Við litla fjölskyldan fórum í heimsókn til Vestmannaeyja um helgina og þegar við komum til baka þá var Bjarninn fluttur í nýju íbúðina sína í Árbænum með Bylgju sinni.

Við fórum með Herjólfi til Vestmannaeyja á föstudaginn og komum heim á sunnudag, einnig með Herjólfi. Gulla var soldið smeyk við sjóinn, og réttilega ef marka má hennar fyrry reynslu af sjómennsku. En þetta gekk allt eins og í sögu. Hlynur stóð sig líka eins og hetja á leiðinni. Við reyndum að láta hann sofa eins mikið og hægt var og gekk það bara mjög vel.

Þetta var helgi mikillar afslöppunar og hræðilegra úrslita í sportinu. Liverpool tapaði og Ferrari gekk illa í … Lesa alla færsluna