* You are viewing the archive for March, 2003



Þetta eru nú meiri ömurlegheitin

Maður ætlar alltaf að vera duglegur að skrifa, en svo verður ekki neitt úr neinu.

Það er svona það helsta að frétta að ég er búinn að skrifa undir ráðningarsamning við Innn hf. Ég er þá orðinn fullgildur starfsmaður þar og hætti sem verktaki. Samningurinn tók gildi 1. febrúar. Ég er mjög sáttur við það allt saman … maður má vera sáttur við að fá vinnu við sitt hæfi eins og ástandið er í dag.

Ég var næstum því farinn að æfa mig í slöngutamningum … eða bensíndælingum eins og venjulegt fólk kallar það. En sem betur fer sá Innn ljósið og ákvað að láta mig ekki sleppa ;)

Við Hlynur áttum saman heila helgi um daginn. Gulla skrapp til Noregs í heimsókn. … Lesa alla færsluna

Alltaf eitthvað nýtt

Það eru einhverjir sem hafa verið að skoða síðuna mína sem eru farnir að pressa á mig með nýjar myndir af honum syni mínum. Það er nú reyndar hægara sagt en gert. Maðurinn sem á stafrænu myndavélina (hann pabbi minn) vildi endilega fá myndavélina sína til baka … sem var að sjálfsögðu mikil frekja af honum. Þegar ég fæ vélina aftur lánaða verður dritað nokkrum myndum af stráknum og skellt hingað inn.

Ykkur sem eruð ekki í Addressu bókinni minni (og fenguð þar af leiðandi ekki tölvupóst frá mér) og langar að sjá guttann hlæja, þá er til smá video af kappanum í léttu hlátur kasti.

Fyrir utan þetta er bara allt gott að frétta af okkur. Það er enn alveg kreisí … Lesa alla færsluna