* You are viewing the archive for February, 2003



Algjör geðveiki

Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér undanfarið að það hálfa væri miklu meira en nóg. Ég er í fullu starfi hjá Innn hf. og er svo með verkefni sem ég er að vinna heima hjá mér.

Hlynur Snær fór í sprautu áðan, og er orðinn tæplega 5.5 kg og 61 cm … ekkert smá duglegur strákur. Hann var ekkert smá duglegur að sofa í nótt … svaf alveg frá ca 23:30 til klukkan 9 í morgun !!! Svefpurka eins og pabbi sinn.

Nenni ekki að hafa þetta lengra … langaði bara að segja frá því hvað strákurinn væri orðinn stór …