* You are viewing the archive for January, 2003



Handbolti, Hlynur Snær og bústaðaferð

Ég er alveg búinn að sjá það að þessi sonur minn er algjör sjónvarpsfíkill. Hann var hjá ömmu sinni um helgina, og gjörsamlega starði á sjónvarpið þegar hann lá á gólfinu. Við feðgarnir vorum að horfa á handboltann saman um helgina, og hann var ekki í rónni nema hann fengi að snúa að sjónvarpinu. Íþróttaáhorfsfíkill eins og pabbi sinn …

Fyrir utan sjónvarpsgláp hefur sá stutti það alveg bráð fínt. Hann er farinn að spjalla svo mikið að við höldum stundum að þegar hann byrjar að tala, þá hættir hann ekkert … ekkert smá mikið sem hann þarf að segja frá. Og svo brosir hann og hlær með … greinilega mikið sem þarf að tjá sig.

Við vinahópurinn og Matarklúbburinn sem ekki … Lesa alla færsluna

Hlynur Snær kominn í rúmið sitt

Hlynur Snær svaf í fyrsta sinn í nýja rúminu sínu í nótt. Erla besta frænka gaf okkur rúm sem hún átti, og ég er búinn að vera að dunda mér við að mála það undanfarna daga. Auðvitað málaði ég rúmið blátt fyrir strákinn :) Og merkilegt … hann svaf bara eins og steinn í alla nótt! Hann fékk að borða rétt fyrir miðnætti í gær, og fór svo að sofa. Rumskaði aðeins kl. 4 í nótt, en sofnaði aftur og vaknaði kl. 7 … jey, þvílík gleði.

Fyrsta á nýju ári

Jæja … þá er komið árið 2003.

Stór afmælis ár hjá mínum nánustu. Pabbi fimmtugur (1.mars), Sverrir vinur þrítugur (13. febrúar), tengdó sextug (17. nóvember). Ég sé fram á dýrt ár í afmælisgjöfum :(

Við, litla fjölskyldan í Vesturberginu höfum það fínt. Hlynur fór í fyrstu sprautuna sína í gær og stóð sig eins og hetja. Hann var að hugsa um að fara að væla eitthvað þegar læknirinn sprautaði hann, en svo var þetta bara búið og minn maður bara sáttur. Hann var viktaður og lengdarmældur. 4.830 g og 58 cm. Júhú !!

Það er alveg fullt að gera hjá mér þessa dagana. Er að vinna fyrir Liverpool.is að smá breytingum sem ég er löngu búinn að lofa að gera. Svo erum við … Lesa alla færsluna