Jólin
Jæja, þá er enn ein jólahátíðin liðin. Þetta líður hjá eins og Ajax stormsveipur líkt og vant er.
Aðfangadagur var alveg frábær. Ég, Gulla, Bjarni mágur, LauLau tengdó, Bína amma hennar Gullu, mamma mín og pabbi og Hlynur Snær. Við byrjuðum matinn á slaginu 6 með humarsúpu. Ég hafði eytt síðasta hluta Þorláksmessunnar í að búa til soð fyrir súpuna. Það sauð frá miðnætti til 5 um morguninn. Súpan var frábær, en full saðsöm svona sem forréttur. Hamborgarahryggurinn var algjört sælgæti.
Pakkaflóðið undir trénu var með því mesta sem ég hef séð um ævina. Hlynur fékk sinn skerf af pökkum, en svaf þetta allt af sér bara. Mamma hans og pabbi sáu um þetta allt fyrir hann. Mér segir svo hugur að … Lesa alla færsluna