Vinna og bros :)
Í dag byrjaði ég að vinna hjá Innn hf. Þeir kaupa af mér einn mánuð í verktakavinnu til að byrja með. Ef það gengur vel, fæ ég að vera hérna áfram. Ég er að skrifa þetta við vinnustöðina mína með 3 glænýja samstarfsmenn yfir öxlinni …
Hlynur Snær brosti fyrir okkur í fyrsta sinn í fyrradag. Og þetta var ekki magakveisubros. Þegar við kitlum hann í hökuna, þá brosti hann þvílíkt til okkar … ekkert smá gaman. Eiginlega í fyrsta skipti sem við eigum einnhver samskipti við hann. Geðveikt !!